Efnisyfirlit

Námskeið


Námskeið á vegum Sumarhússins og garðsins vorið 2010

Kennslustaður: Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík

Ræktunarnámskeið

Matjurtarækt - Námskeið um ræktun, umhirðu og notkun matjurta

Á námskeiðinu er fjallað um sáningu, ræktun og umönnun í ræktun matjurta. Greint er frá hefðbundnum og óhefðbundnum ræktunaraðferðum, jarðvegi og áburðargjöf, sýndar mismunandi gerðir ræktunarbeða, karma og skjólgjafa. Saga matjurtaræktar á Íslandi reifuð, skýrt frá uppruna tegundanna sem teknar eru til umfjöllunar, eðliseinkennum um 40 tegunda og yrkja ásamt því að fjalla lítillega um hollustu og lækningamátt matjurta. Farið er yfir sjúkdóma og skordýr sem hrjá matjurtir og um notkun eiturefna og lífrænna lausna gegn vágestum og sjúkdómum og lýst nokkrum aðferðum við geymslu og matreiðslu.

Kennarar eru garðyrkjufræðingarnir Auður I Ottesen og Jón Guðmundsson. Þau búa yfir margra ára reynslu í ræktun matjurta og hafa fylgst vel með nýjungum og möguleikum sem grænmetisrækt býður upp á hér á landi. Þau eru bæði garðyrkjufræðingar. Auður og Jón eru höfundar bókarinnar Matjurtir

Tvö mánudagkvöld 25/1 og 1/2 kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 12.800.- LOKIÐ
Tvö miðvikudagkvöld 10. og 17. feb kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 12.800.-LOKIÐ
Tvö miðvikudagkvöld 31/3 og 7/4 kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 12.800.-
Leiðb: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson.

Kryddjurtir - námskeið um ræktun kryddjurta og notkun þeirra í matseld
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu tegundir kryddjurta sem ræktaðar eru utandyra, í eldhúsglugganum eða undir ljósi. Hvernig ræktun þeirra er háttað, um sáningu þeirra, forræktun og gróðursetningu. Fjallað um jarðveg, áburðargjöf og umhirðu, gefinn gaumur að helstu meindýrum og sjúkdómum sem herja á jurtirnar og hvernig best er að verjast þeim. Farið yfir ræktun þeirra og hvað þarf að gera til að ná góðri uppskeru. Læra að þekkja kryddjurtirnar og um nýtingu þeirra, geymsluaðferðir og möguleikana í matseld. Kennt verður meðal annars hvernig á að rækta dill, steinselju, garðablóðberg (timían) og fenniku og ýmsar aðrar tegundir.

Mánudaginn 1/2 kl. 17:00 - 18:30. Verð kr. 3.900.- LOKIÐ
Miðvikudaginn 17/2 kl. 17:00 - 18:30. Verð kr. 3.900.- LOKIÐ
Miðvikudaginn 28/4 kl. 18:00 - 19:30. Verð kr. 3.900.- 
Leiðb: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson.

Ræktun ávaxtatrjáa 
Tvö miðvikudagskvöld 27/1 og 3/2 kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 12.800.- LOKIÐ
Tvö mánudagskvöld 1. og 8. mars kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 12.800.- LOKIÐ.
Skráning á næsta námskeið er í gangi. Dagsetning verður tilkynnt síðar.

Leiðb: Jón Guðmundsson.

Ræktun berjarunna - námskeið í ræktun berjarunna og -trjáa.
Miðvikudaginn 3/2 kl. 17:00 - 18:30. Verð kr. 3.900.- LOKIÐ
Mánudaginn 8/3 kl. 17:00 - 18:30. Verð kr. 3.900.- LOKIÐ
Leiðb: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson.

Klipping trjáa og runna og viðarnytjar. 
kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 6.500.- 
Leiðb: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson.


Arkítektúr og skipulag

Handbók húsbyggjandans - frá hugmynd til veruleika.  Ath, ný dagsetning.
Tvö kvöld 17 og 24/3 kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 12.800.- 
Leiðb: Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann Stefánsson.

Sumarhús frá draumi til veruleika.
Tvö mánudagskvöld 25/1 og 1/2 kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 12.800.- LOKIÐ
Tvö kvöld 1 og 3/3 kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 12.800.- LOKIÐ.
Skráning á næsta námskeið er í gangi. Dagsetning verður tilkynnt síðar.

Leiðb: Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann Stefánsson.

Garðhönnun og skipulag

Einn, tveir og tré! 
Einn mánudagur 22/2 kl. 17:00 - 18:30. Verð kr. 3.900.- LOKIÐ.
Skráning á næsta námskeið er í gangi. Dagsetning verður tilkynnt síðar.

Leiðb: Björn Jóhannsson landslagsarkitekt.

Skipulag og ræktun í sumarhúsalandinu. 
Tvö mánudagskvöld 22/2 og 1/3 kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 12.800.-  LOKIÐ.
Skráning á næsta námskeið er í gangi. Dagsetning verður tilkynnt síðar.

Leiðb: Björn Jóhannsson landslagsarkitekt og Auður I. Ottesen garðyrkjufr.

Skjólmyndun í garðinum. 
Miðvikudagur 3/2 kl. 17:00 - 18:30. Verð kr. 3.900.- LOKIÐ
Miðvikudagur 24/2 kl. 17:00 - 18:30. Verð kr. 3.900.- 
Skráning á næsta námskeið er í gangi. Dagsetning verður tilkynnt síðar.
Leiðb: Björn Jóhannsson landslagsarkitekt.

Umhverfissálfræði

Maðurinn, umhverfið og umhverfissálfræðin.
Miðvikudaginn 17/3 kl. 19:00 - 21:30. Verð kr. 4.200.- LOKIÐ
Verð kr. 3.500 fyrir félagsmenn í samtökunum Umhverfi og vellíðan.
Leiðb: Páll Jakob Líndal.

Skráning hér:

Kennarar : 
 
Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur
Auður I Ottesen garðyrkjufræðingur
Hlédís Sveinsdóttir arkítekt
Gunnar Bergmann Stefánsson arkítekt
Björn Jóhannsson landslagsarkítekt
Páll Jakob Líndal nemi í umhverfissálarfræði



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi