Lóðréttur gróðurveggur - Auður allt árið

Hér sýnir Auður hvernig hún reisti lóðréttan gróðurvegg utan um ruslatunnugeymsluna við Fossheiðargarðinn. Ódýr og einföld lausn öðrum til hvatningar og innblásturs.

Vegna þeirrar miklu virðingar sem Auður ber fyrir þeim mönnum og konum sem sækja ruslið vildi hún að fallegasta byggingin á lóðinni væri ruslatunnuskýlið. Í þessu myndskeiði kennir Auður okkur hvernig byggja megi lóðréttan vegg á hagkvæman og áhrifaríkan hátt. Þar fá hnoðrar, steinbrjótar og húslaukar að njóta sín og vaxa um ókomin ár.